Erfitt og dýrt að fá sálfræðiaðstoð

Ég skil ekki afhverju sálfræðiþjónusta er ekki partur af tryggingapakkanum. Það er margt fólk sem hefði meira gagn af huglægri meðferð frekar en að lyfjum sé dælt í það lon og don. Örfáir geðlæknar bjóða upp á samtalsmeðferðir en það heyrir frekar undir undantekningar en hitt.
mbl.is Sálfræðimeðferð við ADHD árangursrík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ósanngjarni jólasveinninn

Fólki finnst það svo gaman að ljúga að börnunum sínum en svo koma svona mál upp og hvernig útskýrir maður það? Svolítið svipað og með guðadelluna. Af hverju hjálpaði Guð fótboltaliðinu að vinna og reddaði ríka gaurnum stöðuhækkun á meðan börn eru að deyja úr hungri? Hmmm. Já, það er ekkert sniðugt að ljúga svona að börnum. Þau geta alveg skemmt sér að hlutum þó að þau viti að þeir séu ekki til í alvörunni.
mbl.is Hún fékk síma, ég fékk mandarínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei.

Þetta á ekki einu sinni að koma til umræðu. Það eru ótalmörg dæmi um mistök við þessa "aðgerð", menn eru með ör eftir þetta og ekki eru börnin deyfð sem þurfa að gangast undir þennan viðbjóð.

 

Ef að karlmaður vill vera umskorinn getur hann farið í slíka aðgerð eftir átján ára aldur. Þetta á ekkert erindi við börn.


mbl.is Leggst gegn banni við umskurði drengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært.

Það er löngu orðið tímabært að mannréttindi hér nái yfir alla og fagna ég því þessu frumvarpi. Fyrir þá sem fussa og sveia hef ég aðeins þetta að segja: Mikið rosalega ert þú heppin/n að vera fædd/ur í réttum líkama og mjög líklega gagnkynhneigð/ur líka. Forréttindi þín eru svo svakaleg að þú hefur engan rétt á að heimta eitt né neitt í þessum efnum.

 

 


mbl.is Leggur fram frumvarp vegna kynáttunarvanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að halda einhverju fram.

Þetta er alveg rosaleg frétt og langt frá þeim raunveruleika sem við blessunarlega lifum við hér á Norðurlöndunum. Við erum ekki alsaklaus af þessu hugsunafari - allavegna ekki í fjölmiðlum.

 Hér kemur fram að læknar staðfesta að konan varð fyrir grófri kynferðislegri árás en í fréttinni er samt ekki hægt að segja "Konu var nauðgað" heldur þarf alltaf af orða þetta á þennan eða sambærilegan hátt: "Kona hélt því fram að henni hefði verið nauðgað". 

 

Bendi á frábæra grein á The Reykjavík Grapevine  - Car claims to have caught fire.


mbl.is Sakaði sænskar konur um að gera sér upp nauðganir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordómar gegn samkynhneigð?

Eða kvenfyrirlitning? Maður bara spyr sig, enda ekki langt á milli þessa tveggja bákna.
mbl.is Sagði af sér fyrir að klæðast sem kona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Price of Pleasure

Ágætis lesning að sjá hvað leikstjóri myndarinnar var að reyna að koma á framfæri með gerð þessarar myndar (hægt að lesa það hér á pdf skjali). Klám er eins misjafnt og allt annað. Margar stelpur leita í "gay porn" vegna þess að hlutverk kvenna í klámi er bara yfirleitt virkilega ömurlegt. Eins er það satt að það þrífst alveg rosalega mikill rasismi og viðbjóður í klámi. Ætli sé ekki bara best að halda sig við amateur porn ef maður ætlar að horfa á þetta yfir höfuð. 

 

Heimasíða myndarinnar er hér og ég játa að mig langar svolítið að sjá hana áður en ég felli um hana dóm:

http://thepriceofpleasure.com


mbl.is Gáfu Jóni heimildarmynd um áhrif kláms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama! :D

Mjög fegin að þetta rættist ekki!

Vá.

Mikil lukka og þungu fargi af manni létt!

Jibbí! :D

Myndi segja eitthvað meira og gáfulegra en klukkan er fjögur um nótt og ég er orðlaus of gleði.


mbl.is Obama kjörinn forseti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

George Carlin.

Einn fyndnasti maður sem ég veit um og mikið uppáhald okkar í fjölskyldunni, George Carlin, er dáinn.

Ég er fáránlega sorgmædd yfir þessu miðað við að ég þekkti hann ekki persónulega en heimurinn er enn lélegri núna þegar að hann er farinn.

Bróðir minn gerði þetta tribute til hans: 

 


"Netþjónustufyrirtæki munu loka fyrir barnaklámssíður "

Á meðan að margir hér hrópa húrra yfir þessari frétt er mér ekki skemmt.
Með þessu er verið að senda þá alhörðustu dýpra í felur þar sem erfiðara verður að finna þá.
Svo ekki sé talað um að bjarga þeim börnum sem enn verða notuð í klám.

Í raun eru þeir sem framleiða barnaklám nú þegar í góðum felum og erfitt að ná til þeirra og því munu þessar aðgerðir ekki hafa mikil áhrif.

Hverjum bitnar þetta þá á? Já það er góð spurning. Hvað flokkast sem barnaklám? Teikningar? Sögur?
Það var svona allsherjar mál á dagbókar vefsíðu sem ég stunda nú fyrir nokkru. Þá var ung stúlka rekin burt fyrir að teikna hetjuna sína, Harry Potter, á kynferðislegan hátt. Að vísu hafði hún látið hann líta út fyrir að vera eldri þar sem þetta var byggt á sögu sem átti að gerast löngu eftir að bókunum lauk.
En þar sem að fígúran Harry Potter er barn í bókunum var skellt í lás á hana og hennar dagbók eytt. Án viðvörunnar.

Er þessi stúlka harðjaxl sem nauðgar litlum börnum?

Og hvað telst sem barnaklám? Ef þú lest um að fjórtán ára stelpa sé "svo sexí" er það vissulega svolítið truflandi. Nema að það sé skrifað af fjórtán ára strák, ekki satt? Kannski verður það bannað líka.

Ef ég vissi að þetta hefði tilætluð áhrif væri ég jafn kát og aðrir sem hafa hrópað húrra, en þar sem að þetta mun bara gera lögreglu erfiðara að finna afbrotamennina er ég ekki hress. Sérstaklega ekki ef þetta fer að "leka" inn á fleiri staði á netinu.


mbl.is Netþjónustufyrirtæki munu loka fyrir barnaklámssíður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband