Skaðleg áhrif trúarbragða?

Þegar ég var lítil velti ég því voðalega lítið fyrir mér afhverju Guð var svona vondur að leyfa slátrun á börnum og annað slíkt óeðli. Það var einsog ég gerði mér grein fyrir því á unga aldri að þetta voru bara stórkostulegar sögur, eins og gríska goðafræðin og teiknimyndablöðin um Þór og hamarinn. En það er fólk sem tekur þetta bókstaflega eða trúir bara því sem það vill úr biblíunni.

"By the rivers of Babylon" sungu diskó fírar glaðlega en hvergi í því lagi kom fram að hóran ætti að það skilið að þjást og missa börnin sín er  þeim er slengt utaní björg og þau kramin. 

Og auðvitað var Guð algóður og Móses var bjargvættur mikill en ekki stuðningsmaður barnanauðgana eins og biblían segir.

Nú er mér ekkert vel við að líkja hlutum við nasismann en getum við ímyndað okkur að eftir eitt þúsund ár (ef einhver er eftir) líti einhver um öxl og hugsi með sér, "ja, burtséð frá öllum morðunum var Hitler bara svolítið sneddí! Hann uppgvötaði heilan helling af nytsamlegum hlutum, var listamaður mikill og hey! Hann var góður við hundinn sinn!"

Nei það er erfitt að ímynda sér það, enda vitum við með vissu að Hitler var vondur maður sem lifði í raun og veru. En hvað vitum við um Guð? Það eru engar sannanir fyrir því að hann sé til eða hafi nokkurn tíma verið; en samt eru enn allt morandi í ofsóknum, kúgun, kvenfyrirlitningu, fordómum og fáfræði í hans nafni.

Nú er til dæmis 9 ára gömul stúlka að ganga með barn eftir að vera nauðgað af frænda sínum bara af því að páfagarður vildi ekki að hún færi í fóstureyðingu!  Er þetta eðlilegt? Er eðlilegt að kona ráði ekki eigin líkama og heilsu, eða að læknavísindi standi í stað af því að einhver trúir því, án nokkurra staðreynda, að einhver kall upp á skýi sé á mót því?

Hvenær getum við farið að hegða okkur eins og fólk með viti og hætt að fela okkur á bak við sögur af einhverju gaur sem var eða var ekki uppi fyrir 2000 árum, eða 2500 árum, eða 3000 árum (biblían er nefnilega ekki viss).  

Ég vildi að þessi frétt af Bretunum væri sönn en mér finnst 2200 manna úrtak ekki segja mikið. Hverjir voru spurðir? Afar fáir allavegna.

 

Bara svona svo að það komi fram þá finnst mér ekkert að því að vera trúaður, svo lengi sem það er persónuleg trú og fólk sé ekki að halda því fram að það viti með vissu nákvæmlega hvað eða hver skapaði heiminn.

"Ef þú getur skýrt það afhverju þú afneitar öllum guðum nema þínum eigin, þá geturðu skilið ahverju ég afneita þínum"

 Segjum þetta gott í bili.

 


mbl.is Annar hver Breti telur trúarbrögð skaðleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Daníelsson

Djöfulli góðar hugleiðingar hjá þér. En ég segi bara "Allt er gott í hófi", trúarbrögð líka. Allt í lagi að trúa, en ef þú heldur að orð guðs séu hreinn sannleikur sem skal fylgja í öllu og einu, tja, þá ættir þú að líta í eigin barm.

Grímur Daníelsson, 4.9.2007 kl. 08:40

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Og hvernig byrjaði þetta allt saman? Svona?

Villi Asgeirsson, 4.9.2007 kl. 11:42

3 Smámynd: Púkinn

Jamm, guð biblíunnar, sérstaklega sú útgáfa sem kemur fram í Gamla Testamentinu, kemur óneitanlega fram eins og sadistíkur perri -  stuðlar að þjóðarmorðum og hefur óeðlilegan áhuga á að stjórna kynlífi fylgismanna sinna.

Og svo leyfa þeir sem trúa því að þessi ævintýrafígúra sé algóð, alvitur og almáttug að kalla okkur trúleysingjana rót alls ills.

Púkinn, 4.9.2007 kl. 16:09

4 Smámynd: Ellý

Takk fyrir tengilinn, Villi. Ég var alin upp til að elska og dá Douglas Adams fyrir hand snilligáfu og get nú ekki annað gert. Enda varð ég mjög glöð þegar ég komst til vits og ára (allavegna ára) og komst að því að hann var trúleysingi. Það varð bara til að hækka pallinn hans nokkuð.

Svona byrjaði þetta nákvæmlega, svo varð trú bara tól fólks til að stjórna almúganum og halda honum góðum og því miður virðist svo enn vera.

Ellý, 4.9.2007 kl. 18:53

5 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Púki: gættu þín; afabróðir minn var dæmdur í fangelsi fyrir að segja þetta.

Elías Halldór Ágústsson, 4.9.2007 kl. 20:30

6 Smámynd: Ellý

Elías, hvernig má það vera þegar málfrelsi ríkir? Forvitin!

Ellý, 4.9.2007 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband